28.05.1932
Efri deild: 86. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2275 í B-deild Alþingistíðinda. (2573)
256. mál, gjaldfrestur bænda og bátaútvegsmanna
Jón Þorláksson:
Ég vil bæta því við það, sem ég hefi áður sagt, að ég hefi átt tal um málið við lærðan lögfræðing, og var hann þeirrar skoðunar, að þetta myndi ekki koma að sök. — Mér skildist af ræðu hv. 4. landsk., að skuldheimtumenn, sem nú hafa mál langt á veg komin út af einhverjum kröfum, gætu komið sínum málum fram án þess að aðrir skuldheimtumenn gætu slíkt hið sama. En héðan af tel ég ekki hættu á því, að menn, sem hér eftir færu með mál á hendur skuldunaut, væru búnir að fá dóm svo snemma, að hann væri orðinn sex mánaða gamall. Annars vil ég ekki þrátta um þetta við hv. þm., en ég held, að ekki mundu verða mikil brögð að því að aðrir skuldheimtumenn hefðu ekki svigrúm til þess að gæta réttar síns fyrr en hag skuldunauts væri orðið svo hallað, að hann ætti ekki fyrir skuldum.