03.06.1932
Efri deild: 92. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2348 í B-deild Alþingistíðinda. (2700)

258. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Forseti (GÓ):

Vegna þess að ekki er nægilega langur tími liðinn frá því er þetta frv. var hér til 2. umr. í hv. d., verður að leita afbrigða til þess að það megi koma hér til 3. umr. á þessum fundi, og sömuleiðis þær brtt., er fram eru bornar við frv. á þskj. 822, 823 og 825. Ennfremur hefir hv. 1. landsk. afhent mér skrifl. brtt., sem einnig þarf að leita afbrigða um.