03.06.1932
Efri deild: 92. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2360 í B-deild Alþingistíðinda. (2713)
258. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Jón Baldvinsson:
Hv. 3. landsk. gerði að umtalsefni atkvgr., sem fór fram hér í deildinni fyrir nokkru, um frv. um hækkun á tekju- og eignarskatti. Það var rétt hjá hv. þm., að frv. þetta var borið fram af tveim samflokksmönnum hv. þm., og það var líka rétt hjá honum, að atkvgr. um það var mjög dræm. Að ég greiddi ekki þegar atkv. í máli þessu, var ekki sökum þess, að ég væri andstæður skattastefnu þeirri, sem það var byggt á, heldur var það af því, að ég vildi ekki afhenda stj. slíkt tekjuaukafrv., meðan kjördæmaskipunarmálið var óleyst. Þó varð það svo, að ég greiddi atkv. með frv. til n., ef ske kynni, að úr kjördæmaskipunarmálinu greiddist. Það er líka vitanlegt, að sjálfstæðismenn eru samþykkir skattamálastefnu þeirri, sem kemur fram í verðtollslögunum, en þó vildu þeir ekki hleypa frv. um framlenging þeirra gegnum deildina, og það nákvæmlega af sömu ástæðu og vakti fyrir mér, er ég vildi ekki hleypa í gegn frv. því, er hv. þm. var að tala um. Þetta veit hv. þm. ofurvel, þó að nú sé bilið að taka stífluna úr með samkomulagi því, sem orðið er á milli Framsóknarfl. og Sjálfstæðisfl. Það var ákveðið að sleppa engum tekjuaukafrv. við stj. fyrr en réttlætismálið væri leyst, þó að öðruvísi hafi nú farið.