04.06.1932
Neðri deild: 94. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2374 í B-deild Alþingistíðinda. (2777)
826. mál, lán til skipaviðgerðarstöðvar í Reykjavík
Héðinn Valdimarsson [óyfirl.]:
Mér finnst frv. þetta allmikið breytt frá því, sem upphaflega var, ef þessi brtt. verður samþ. Eins og frv. liggur fyrir, er ætlazt til, að ríkissjóður, í samráði við bæjarstjórnir Rvíkur og Hafnarfjarðar, komi upp dráttarbrautinni. En þrátt fyrir þetta getur þetta fyrirtæki tekið undir sig aðra vinnu en járnsmíðavinnu, t. d. tré
smíðavinnu, rafmagnsvinnu o. s. frv. Þó að ríkið eigi hér að taka á sig mikla ábyrgð, þá er ekkert um það sagt, hvernig þetta fyrirtæki eigi að verða rekið, t. d., hvort það opinbera skuli ekki hafa einn mann í stj. þess. Þó á ríkið hér talsvert mikilla hagsmuna að gæta, þar sem það á mörg skip, sem gætu komið þar til aðgerðar. — Ég er því frv. fylgjandi eins og það liggur fyrir nú, en ég get ekki greitt þessari brtt. atkv. Mér virtist heppilegast, að bærinn eða höfnin, kannske í sameiningu með ríkissjóði, ætti dráttarbraut fyrir þau skip, sem hér þyrfti að gera við, bæði innlend og útlend. Það er mest trygging fyrir því, að fyrirtækið sé stöðugt rekið og verð á viðgerðum fari ekki fram úr hófi. Hitt kann ég ekki við, að farið sé skilyrðislaust að taka ríkisábyrgð á einkafyrirtæki.