15.03.1932
Neðri deild: 29. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 182 í C-deild Alþingistíðinda. (2936)
128. mál, verðtollur af tóbaksvörum
Héðinn Valdimarsson:
Á síðasta þingi greiddum við jafnaðarmenn atkv. 2 móti tekjuaukafrv. stj., af því að okkur fannst ekki ástæða til að láta hana fá meira fé til að valsa með. En hinsvegar bárum við fram tekjuaukafrv., þar sem jafnframt var ætlazt til, að tekjurnar, sem þau gæfu, gengju til þeirra fyrirtækja og málefna, sem við berum fyrir brjósti. Þau tíðindi gerðust seint á sumarþinginu, að samkomulag var milli Framsóknarfl. og Alþýðufl. um að lögfesta ríkiseinkasölu á tóbaki með því skilyrði, að ágóðinn af verzluninni færi að hálfu í byggingar- og landnámssjóð, en hinn helmingurinn til þess að reisa verkamannabústaði í kaupstöðum. Þetta virðist vera mjög sanngjörn skipting á arðinum milli landsfólksins og flokkanna. En nú kemur það í ljós, að með þessu frv. er stj. að svíkjast aftan að þessum lögum frá síðasta þingi og gera tilraun til að ná nokkrum hluta af verzlunararðinum í ríkissjóð, í stað þess að hann átti allur að renna í byggingarsjóðina samkv. gildandi lögum. Það sjá allir, að þegar lagður verður til viðbótar 15% verðtollur á tóbakið, þá minnkar það möguleikana fyrir ágóða af einkasöluálaginu, því að hærra verð dregur ávallt úr neyzlu. En ef verðið yrði ekki hækkað, hlyti verzlunarálagningin að verða minni, og hljóta tekjur tóbakseinkasölunnar þá að minnka; mikill hluti þess ágóða, sem átti að ganga til verkamannabústaða og í byggingar- og landnámssjóð, verður með þessu frv. tekinn beint í ríkissjóð.
Auk þess, sem við jafnaðarmenn sjáum ekki ástæðu til að láta stj. fá þetta fé til að valsa með, þá er hér af hálfu Framsóknarfl. gengið á gerða samninga við okkur, enda var ef til vill aldrei við öðru að búast af þessum flokki. Við jafnaðarmenn munum því greiða atkv. á móti þessu frv. í báðum deildum.