09.03.1932
Neðri deild: 24. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í C-deild Alþingistíðinda. (3056)

89. mál, ungmennaskóli með skylduvinnu nemenda

Magnús Guðmundsson:

Hv. aðalflm. frv. þessa er veikur, og þar sem ég er einn af flm. þess, vil ég mælast til, að það fái að ganga áfram til 2. umr., helzt umræðulaust, því að þetta er gamall kunningi hér í d., sem flestir hv. dm. þekkja. Umr. um það á þessu stigi virðast því þýðingarlitlar. Óska ég því svo vísað til menntmn. að umr. lokinni.