13.04.1932
Efri deild: 50. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 86 í D-deild Alþingistíðinda. (3242)

23. mál, milliþinganefndir um iðjumál og iðnað

Jakob Möller:

Ég þarf ekki að mæla mjög fyrir brtt. þeirri, sem ég á á þskj. 376 ásamt hv. 2. þm. Eyf. Gerði ég grein fyrir því við fyrri umr., að till. myndi koma fram um það, að þessi n. starfaði kauplaust. Er málið svo skýrt, að ég held mig ekki þurfa að ræða það frekar, umfram það, sem ég lét fylgja því við fyrri umræðu.