14.03.1932
Neðri deild: 28. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 472 í C-deild Alþingistíðinda. (3395)
92. mál, kartöflukjallarar og markaðsskálar
Halldór Stefánsson:
Ég vil aðeins leyfa mér að vekja athygli á því, að ég er flm. ekki samdóma um það, að selja eigi þeim, sem samtök hafa aðeins um verzlun með ísl. kartöflur og aðra garðavexti, byggingar þessar ríkissjóði að skaðlausu. En undir eins og samvinnufélag framleiðenda er stofnað í þeim tilgangi, þá er heimildin góð og gild eins og ég sef hana fram. En eigi það að vera meiningin, eins og mér skilst á hv. þm. Borgf., að ekki mátti selja þessar byggingar öðrum en samlagi seljenda, þá er ég því mótfallinn efnislega. En skv. því, sem ég hefi áður sagt, ætla ég að leyfa mér að afhenda hæstv. forseta brtt. þessu viðvíkjandi.