15.04.1932
Neðri deild: 52. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 508 í C-deild Alþingistíðinda. (3468)

368. mál, skiptalög

Jónas Þorbergsson:

Í sambandi við þetta frv. vil ég vekja athygli á því, og beini því sérstaklega til hv. samgmn., að stofnað hefir verið til nýrra gjalda til ríkisstofnunar, sem eru sama eðlis og símagjöldin, en það eru afnotagjöld útvarpsnotenda til ríkisútvarpsins. Vildi ég óska, að hv. n. sæi sér fært fyrir 2. umr. frv. að bæta afnotagjöldum til ríkisútvarpsins inn í 1. gr. frv., af því að líkt er háttað um þau og símagjöldin, að þau eiga að styðja ákveðna ríkisstofnun í landinu. En ef hv. samgmn. vill ekki taka þetta til greina, mun ég sjálfur bera fram brtt. þessa efnis við 2. umr.