02.05.1932
Neðri deild: 65. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 549 í C-deild Alþingistíðinda. (3516)
581. mál, veitingasala, gistihúsahald o.fl.
Frsm. (Bergur. Jónsson):
Tilgangurinn með þessu frv. er sá, að taka af þann ósið, að millilandaskip séu notuð séuð gistihús, þótt þau hafi ekki slíkt leyfi og fullnægi ekki þeim skilyrðum, sem lög um veitingasölu og gistihúshald setja, né heldur hafi greitt það gjald, sem áskilið er fyrir leyfið. Víðast erlendis mun bann við slíkri starfsemi skipa. Er sérstök ástæða til þess, að löggjafarvaldið taki fyrir þetta, þar sem bæði höfuðstaðurinn og ríkið eru í stórum ábyrgðum fyrir aðalgistihúsið í Reykjavík. Er og ekki ástæða til þess, að erlend skipafirmu dragi gesti frá gistihúsunum hér, þegar nægilegt rúm er þar. En samkvæmt frv. gildir hann þetta því aðeins, að nægilegt rúm sé í gistihúsunum í landi.