28.04.1932
Neðri deild: 62. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 556 í C-deild Alþingistíðinda. (3546)

262. mál, vélgæsla á gufuskipum

Magnús Jónsson:

Ég tók eftir því, að hæstv. forseti lýsti brtt. við frv. þetta. En þar sem ég, ásamt öðrum, flyt brtt. við frv., þykir mér óþægilegt að þurfa að ræða málið áður en þessar till. eru fram komnar og ljóst er orðið, út á hvað þær ganga. Vil ég því leyfa mér að leggja til, að málinu verði frestað.