29.03.1932
Efri deild: 37. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 695 í C-deild Alþingistíðinda. (3651)

15. mál, fimmtardómur

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Með því að frv. þetta hefir tvisvar áður legið hér fyrir d., og þá verið rætt allýtarlega, og einnig verið rætt n., og með því að það hefir nú verið rætt ýtarlega hv. Nd., þá sé ég ekki ástæðu til að fara að ræða það hér nú við þessa umr., en legg til, að því sé vísað til allshn., að umr. lokinni.