31.03.1932
Efri deild: 39. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 714 í C-deild Alþingistíðinda. (3671)

15. mál, fimmtardómur

Jón Jónsson:

Ég lít svo á, að rétt sé bókað og að atkvgr. eigi jafnan að bóka eins og forseti lýsir henni, en forseti lýsti henni eigi fyrr en atkv. höfðu fallið svo sem bókað er. Hinu verður hv. d. að skera úr, hvort þeir, sem eru óánægðir, geti fengið bókaðar aths., er sýni afstöðu þeirra.