31.03.1932
Efri deild: 39. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 714 í C-deild Alþingistíðinda. (3673)

15. mál, fimmtardómur

Jón Jónsson:

Ég lít svo á starf mitt sem bókara, að ég eigi ekki að bóka annað en það, sem forseti lýsir, og þótt atkvgr. hafi verið endurtekin, hafi eigi verið ástæða til að bóka það nú fremur en vant er.