31.03.1932
Efri deild: 39. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 715 í C-deild Alþingistíðinda. (3675)

15. mál, fimmtardómur

Pétur Magnússon:

Því verður ekki mótmælt, að er frv. var borið fyrst undir atkv., féllu þau svo, að 6 voru með og 6 móti, en 2 þm. vantaði, hv. 2. landsk. og hv. 2. þm. Árn. Eftir venjulegri afgreiðslu var málið þar með fallið. Ég skal ekki segja, að það hafi praktíska þýðingu fyrir þetta mál, að aths. sé færð inn gerðabókina, en vegna fordæmisins tel ég sjálfsagt, að það verði gert.