31.03.1932
Efri deild: 39. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 720 í C-deild Alþingistíðinda. (3701)

15. mál, fimmtardómur

Jón Baldvinsson:

Út af orðum hv. 4. landsk. vil ég taka það taka það fram, að það hefir nú þegar verið samþ. með 8 shlj. atktv., að það hafi verið rétt bókað, sem gerðist á fundinum gær, en nú kemur hv. l. landsk. og vill fá bókað eftir á atburði, er hann telur hafa gerzt á fundinum. Ég vil nú fá úrskurð hæstv. forseta um það, hvort þetta sé hægt eftir þingsköpum.