31.03.1932
Efri deild: 39. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 720 í C-deild Alþingistíðinda. (3706)

15. mál, fimmtardómur

Jón Þorláksson:

Óskar forseti að fá tillöguna afhenta strax ? (Forseti: Já, ég óska þess).

Út af umr. þeim, sem hér hafa orðið, vil ég benda á, að það er ekki lengra síðan en á síðasta þingi, að bókuð var aths. svipuð þeirri, sem hér er farið fram á að fá bókaða. Kom hún fram sambandi við umr. þær, er urðu um landsreikninginn.