06.06.1932
Sameinað þing: 16. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í D-deild Alþingistíðinda. (3764)
851. mál, verzlunar- og siglingasamningar við Noreg
Fors.- og fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):
Formaður utanríkismálanefndar hefir rakið sögu þessa máls allrækilega. Ég þarf ekki að segja annað en það, að stj. mun vitanlega taka fullt tillit til þessarar till., ef hún verður samþ. Það kom fram í ræðu formanns n., að fengizt hefði frestur á uppsögn samningsins til 1. júlí. Nú skyldi maður ætla, að þetta gæfi nokkra von um góða lausn málsins, en svo er þó ekki. Sá frestur var Norðmönnum útlátalaus, því tollabreyt. þar ganga í gildi 1. júlí, svo að uppsögnin hefði vitanlega ekki komið til greina fyrr. Síðan þessi frestur var gefinn hafa Norðmenn tekið illa í að taka upp samninga um þessa hluti. Það er því full ástæða fyrir utanríkismálanefnd að bera fram slíka till. sem þessa. Stjórnin mun hafa vakandi auga með þessu máli og taka fullt tillit til óska þingsins um ráðstafanir í þessum efnum.