02.04.1932
Neðri deild: 41. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í D-deild Alþingistíðinda. (3860)
252. mál, niðurfærsla á útgjöldum ríkisins
Flm. (Jóhann Jósefsson):
Hæstv. fjmrh. heldur því fram enn, að fjvn. gæti gert þetta starf, sem hér er um að ræða að fela þessari sérstöku n.; þó er það upplýst, að nefndin hagi störfum sínum þannig, að nm. allir lesi skjöl þau, er til þeirra koma, saman og athugi allar beiðnir, er n. berast, í sameiningu. Það var alltaf vitanlegt, að þannig gengi þetta til, enda lagði form. sérstaklega áherzlu á, að það væri aðalstarf n. Ég býst því við, að allir geti verið sammála um, að starf það, sem hér er um að ræða, væri ofvaxið fjvn. Það myndi aðeins verða íhlaupastarf, sem lítið eða ekkert yrði á að græða.
Þá vitnaði hæstv. fjmrh. í nefndina, sem kosin var 1922, og gerði samanburð á henni og n. þeirri, sem hér er lagt til að kosin verði. Það má vel vera, að þeirri n. hafi orðið lítið ágengt, en ég vil benda hæstv. ráðh. á, að ástandið 1922 var allt öðruvísi en það er nú. Og það var beinlínis rangt hjá hv. 1. þm. S.-M., að starfsvið n. 1922 hefði verið víðtækara en þessarar. Sú n. átti aðeins að gera till. um gjöld ríkissjóðsins og athuga meðferð ríkisfjárins. (SvÓ: Hv. þm. ætti að lesa till.). Ég hefi lesið till. og framsöguræðu hv. 1. þm. S.-M. líka, og ég býst við, að hv. þm. hefði gott af því sjálfur að kynna sér það, sem hann sagði þá um þessa hluti.
Hæstv. fjmrh. veit mjög vel, að hér er ekki um sama verkefni að ræða og var 1922, heldur miklu, miklu meira, þar sem hin síðastl. 10 ár hafa sprottið upp stór ríkisfyrirtæki, sem hafa mikil áhrif á afkomu ríkissjóðsins. Þau hafa verið talin upp áður og gerist þess því ekki þörf að telja þau upp aftur nú. (Fjmrh.: Þarf þá ekki að skipa mþn. til þess að athuga þessa hluti?). Jú, það þarf mikla starfskrafta til þess að athuga þessi mál niður í kjölinn, og því þarf að samþ. till. mína.
Þá sagði hæstv. ráðh., að ekki væri hægt að fækka starfsmönnum við stofnanir, ef forstöðumennirnir legðust á móti því, nema ef ýtarleg rannsókn færi fram. Þetta er rétt, en ég sé ekkert á móti því, að þessi ýtarlega rannsókn fari fram. Ég býst við, að flestir séu á einu máli um, að hennar sé full þörf.
Hæstv. ráðh. gerði dálitla tilraun til útúrsnúninga. Hann sagði, að við myndum heimta þriðju nefndina, ef þessi yrði samþ. Ég býst alls ekki við, að hæstv. ráðh. meini þetta. Hann veit vel, að nefndarinnar er full þörf og hún þarf að vera starfhæf. Væri honum þetta ekki ljóst, þá myndi hann ekki vera að gera ráð fyrir mþn. til þess að vinna þetta verkefni, en fram á það höfum við ekki farið.
Þá sagði hæstv. ráðh., að það dygði ekki, að allir segðu: það er ég, sem á að ráða, en ekki þú. — Út af þessu vil ég minna hann á, hvaða flokkur það er, sem tekið hefir til mestra örþrifaráða til þess að halda völdum og ráða einn. Er það kannske ekki hans eiginn flokkur? Ég get vel þolað, þó að ráðh. noti fyndnisgáfu sína til þess að skemmta flokksmönnum sínum og reyni með því að gera till. hlægilega. Það er ekki nema í samræmi við meðferð till. í Sþ., þó að þeir flissi nú eins og endranær, þegar alvaran ber að dyrum. En það er bara engin lækning á ástandinu. Það þarf meira en hlátrasköll framsóknarmanna til þess að ráða bót á öllum þeim afglöpum, sem stj. þeirra hefir gert. Hæstv. ráðh. sagði og, að hann gæti ekki þakkað mér neitt fyrir þessa till. Ég er hvorki að falast eftir þökkum eða hluttekningu hjá honum. Hann má því spara sér alla hluttekningu mín vegna, enda mun honum meiri þörf að líta til annara en okkar flm. þessarar till. með hluttekningu sína áður en lýkur.