02.04.1932
Neðri deild: 41. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 228 í D-deild Alþingistíðinda. (3866)
252. mál, niðurfærsla á útgjöldum ríkisins
Jón Auðunn Jónsson:
Ég vil aðeins benda á það, að hæstv. ráðh. vildi ekki gera samanburð á þeim grundvelli, sem ég gaf tilefni til, hvað rekstur Djúpbátsins og ríkisskipanna snertir. Í stað þess fer hann að bera saman rekstur ríkisskipanna nú og þegar dýrtíðin var mest. Þá voru t. d. kolin 25% hærri og kaupgjald 15% hærra en nú.
Það er að sjálfsögðu hægt að heimta það, að við sjálfstæðismenn greiðum atkv. með tollum, sköttum og nýjum álögum. En við getum ekki gengið inn á slíkt á meðan engin rannsókn fæst á því, hvað spara megi. Og á hvað á að leggja þessa skatta? Undirstaðan er örþrota atvinnuvegir og atvinnulítið fólk. Við hljótum því að vera á móti öllum nýjum álögum, til þess að knýja fram allan mögulegan sparnað.