01.04.1932
Neðri deild: 40. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 951 í C-deild Alþingistíðinda. (3933)
16. mál, loftskeytanotkun íslenskra veiðiskipa
Jón Auðunn Jónsson:
Ég vil fyrst, með leyfi Hæstv. forseta, tala nokkur orð um þingsköp. Ég veit ekki til þess, að vant sé að halda þm. við umr., þegar orðið er svona fátt í d. Ég vil biðja hæstv. forseta að hringja, og fáist ekki helmingur hv. þdm. á fund, er Hæstv. forseta vansæmd að því að lata okkur þá fáu, sem eftir erum, sitja og tala yfir tómum bekkjum. — ég sé, að hæstv. dómsmrh. skýtur upp í dyrum ráðherraherbergisins, og skal ég játa, að það er þó alltaf gott að fá að sjá framan í hæstv. dómsmrh. En ég vil beina því til forseta, að ég hefði talað stutt um þetta mál að degi til, ef þingheimur hefði verið viðstaddur, en eigi að halda því fram til streitu, að umr. haldi nú óslitið áfram, mun ég ekki spara tímann, sérstaklega þegar svo vel hittist á, að hæstv. dómsmrh. er viðstaddur.