01.04.1932
Neðri deild: 40. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 952 í C-deild Alþingistíðinda. (3936)
16. mál, loftskeytanotkun íslenskra veiðiskipa
Forseti (JörB) (hringir):
Út af ummælum hv. þm. N.-Ísf. vil ég enn taka það fram, að fyrst engir þm. hafa burtfararleyfi, er það ekki mín sök, þótt þeir séu ekki hér til þess að hlusta á ræður hv. þm. Ég sagði öllum strax í mörgun, að fundi yrði haldið áfram ótiltekið. Það er því ekki að neinu leyti mín sök, þótt fámennt sé í d. nú.