07.05.1932
Neðri deild: 69. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í D-deild Alþingistíðinda. (3981)
177. mál, hæstaréttardómaraembættið
Bergur Jónsson:
Þetta mál snertir hæstv. dómsmrh. fyrst og fremst, en hann getur ekki verið hér nú, af því að hann er að halda ræðu í Ed. — Í gamla daga mun það hafa verið venja á Alþingi að hafa sérstaka liði í fjárl. fyrir hvern þann listamann, skáld og vísindamann, sem fékk styrk af ríkisfé. Þetta var lagt niður, af því að það gaf tilefni til mjög persónulegra umr. um þessa menn, og höguðu þm. afstöðu sinni til styrkveitinga mjög eftir pólitískri afstöðu til styrkþeganna. Ég minnist þess að hafa séð í þingtíðindum mjög ólíka dóma tveggja merkra þm. á Einari Jónssyni myndhöggvara. Annar var Bjarni Jónsson frá Vogi, og hóf hann list Einars til skýjanna, en hinn var Jón Ólafsson ritstjóri, og sagði hann m. a., að það væru tómar skrípamyndir, sem frá Einari kæmu.
Mér datt þetta í hug út af þessari till. hv. þm. Skagf. Þar er lagt til, að aldraður dómari, sem hefir setið lengi í æðsta dómstól landsins, en er nú hættur störfum, verði tekinn þangað aftur, ef hann óskar þess. Í því sambandi verður að vita, hvort það er meiri gróði fyrir ríkið að hljóta starf hans fyrir laun þau, er hann fær, eða að vera laus við hann, af því að hann, vegna aldurs, sé ekki fær um að gegna starfi sínu áfram. Mér finnst það í fyllsta máta óviðkunnanlegt af hv. flm. að gefa tilefni til svo persónulegra umr. um gamlan og virðulegan embættismann og hér er gert. Hér á að meta það, hvort hægt sé vegna aldurs að láta þennan mann gegna störfum sínum áfram, og finnst mér slíkt ákaflega taktlaust af hv. flm. að gefa tilefni til slíks mats. Ég mun samt ekki ganga inn á braut persónulegra umr. um þennan mann, en geri það að till. minni, að málinu verði vísað til stjórnarinnar.