20.04.1932
Efri deild: 56. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 841 í B-deild Alþingistíðinda. (401)

5. mál, verðtollur

Jón Þorláksson [óyfirl.]:

Þess hefir áður verið getið hér, að afstaða sjálfstæðismanna til þessa frv. fer eftir afdrifum stjórnarskrármálsins. Stjórnarskrárbreytingin var afgr. hér úr deild í því formi, sem sjálfstæðismenn óskuðu. Hefir hún farið gegnum 1. umr. í Nd. og verið vísað til n. þar. Þar sem svo stendur á, sjáum við ekki ástæðu til að setja okkur á móti því, að frv. verði vísað til n. hér í deild. Geymum við því afstöðu okkar til síðari umr.