20.05.1932
Neðri deild: 79. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1117 í C-deild Alþingistíðinda. (4081)

70. mál, ábúðarlög

Forseti (JörB):

Mér hefir borizt skrifl. brtt. frá hv. 1. þm. S.-M., við brtt. 760,4, á þessa leið:

„Á eftir „æfilangt“ komi: nema leiguliði óski annars eða nauðsyn beri til að ráðstafa jörðum tiltekinn tíma“.

Þessi brtt. er skrifleg og of seint fram komin og þarf því tvennskonar afbrigða vegna hennar.