10.05.1932
Sameinað þing: 8. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í D-deild Alþingistíðinda. (4109)
223. mál, viðskiptasamningar við erlend ríki
Jón Baldvinsson:
Ég spurðist fyrir um það, hvort ætti að skilja orð hæstv. fjmrh. þannig, að hann vildi fallast á það, að Alþýðuflokkurinn fengi fulltrúa í utanríkismálanefnd. Hæstv. forsrh. lét svo í seinni ræðu sinni, að það hefði komið fram hjá mér, að við hefðum viljað taka þátt í störfum þessarar n., en í minni ræðu kom ekkert fram í þá átt. Ég spurði aðeins um þetta, og hæstv. fjmrh. svaraði hálfgerðum ónotum, að við hefðum ekki tekið þátt í kosningu utanríkismálan. síðast og sagði, að það yrði að bíða síns tíma, að við gætum komið manni í n., þegar kosið yrði. Spurning mín var um það, hvort flokkarnir vildu leyfa, að Alþýðuflokkurinn ætti fulltrúa í þessari n., en hitt talaði ég ekkert um, hvort við ætluðum að taka þátt í þessari n., því að til þess þurfti ég að ráðgast við flokksmenn mína.
Í síðari ræðu sinni dró hæstv. fjmrh. nokkuð úr þessum ummælum sínum, að hann vildi ekki, að Alþýðuflokkurinn kæmi manni í n. áður en kosið yrði, eða á næsta þingi. Ástæðan til alls þessa er sú, að hv. flm. till. hefir sett það í hana, að utanríkismálastjórnin, sem er að líkindum hæstv. forsrh., í samráði við stj. flokkanna leitist fyrir um það, sem í till. segir. Það er eðlilegt, þegar Alþýðuflokkurinn hefir ekki afl til þess að koma manni í utanríkismálanefnd, að við viljum fylgjast með mikilsverðum málum á þennan hátt.
Út af því, sem hv. þm. Vestm. sagði í dag, vil ég spyrja hæstv. forsrh. um það, hvernig samningurinn um sölu sjávarafurða til Þýzkalands sé. Eins og kunnugt er seldu togararnir á síðasta hausti ísfisk til Þýzkalands, en síðar stöðvaðist það. Var þá sendur maður til Þýzkalands, að ég ætla hv. þm. Vestm., og þá gerði danski sendiherrann með aðstoð hv. þm. samning við Þjóðverja um sölu einhvers tiltekins hluta fiskjar. Ég hefi ekki heyrt, hvort sá samningur hefir verið endurnýjaður, en mér skilst, að nokkrir erfiðleikar séu á því að ráða yfir gjaldeyri, sem fæst í Þýzkalandi fyrir íslenzkar vörur.
Það má vera, að hæstv. fjmrh. hafi orðað það við einhvern af mínum flokksmönnum, hvort við vildum ekki hafa mann í n. En þar við er það að athuga, að til þess þarf samþykki beggja stóru flokkanna hér á þingi; að öðrum kosti getum við vitanlega ekki komið manni í nefndina.
Ég fór fram á það í Ed. í vetur, að Alþýðuflokkurinn fengi að hafa þar einn mann í stjórnarskrárnefnd. Alþýðuflokkurinn á ekki nema einn fulltrúa í Ed., og þurfti því samþykki beggja flokkanna. Þessari málaleitun var þannig tekið, að báðir flokkarnir settu Alþýðuflokksmanninn á sína lista, auk þess sem Alþýðuflokkurinn fékk þó að skila lista. Þetta var gert til þess að sýna, að Alþýðuflokkurinn væri þess ekki megnugur að koma fulltrúa í n., heldur þyrfti hann aðstoð hinna flokkanna til þess. Það er kannske á einhvern slíkan hátt, sem hæstv. fjmrh. vill, að Alþýðuflokksmaður komi í n., þannig, að flokkurinn taki hann upp á arma sína, en það viljum við alls ekki.