10.05.1932
Sameinað þing: 8. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í D-deild Alþingistíðinda. (4111)
223. mál, viðskiptasamningar við erlend ríki
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Út af fyrirspurn hv. 2. landsk. um samninginn við Þjóðverja vil ég taka það fram, að ég hefi vitanlega ekki samningana við hendina nú, en hv. þm. er velkomið að koma upp í stjórnarráð og sjá samningana þar, og getur hann þá kynnt sér þá og með þá farið eins og hann óskar eftir.