10.05.1932
Sameinað þing: 8. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í D-deild Alþingistíðinda. (4120)

223. mál, viðskiptasamningar við erlend ríki

Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Mér skilst, að ég hafi ekki skýrt rétt frá því, þegar ég gat þess, að hv. 2. landsk. hefði verið á tveimur listum við nefndarkosningu í Ed., því að mér hefir nú verið skýrt frá því, að hann hafi verið á þremur listum. Ég vissi ekki um jafnaðarmannalistann, sem hann kvað hafa borið fram. En ég vil líta svo á, að með þessu hafi verið náð hámarki þess samstarfs, sem hv. 2. landsk. hefir haft við aðra þingflokka um dagana.