20.05.1932
Efri deild: 79. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 857 í B-deild Alþingistíðinda. (416)

5. mál, verðtollur

Jón Þorláksson [óyfirl.]:

Minni hl. fjhn. hefir ekki skilað nál. um þetta frv. Er það vegna þess, að afstaða Sjálfstæðisflokksins til frv. er á þann veg, að við sjálfstæðismenn verðum að leggja á móti því, að frv. nái samþykki, meðan ekki er fengin vissa um samkomulag milli flokka um viðunanlega úrlausn í stjórnarskrármálinu.