16.03.1932
Sameinað þing: 5. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 320 í D-deild Alþingistíðinda. (4186)

91. mál, niðurfærsla á útgjöldum ríkisins

Forseti (EÁrna):

Enda þótt ég líti svo á, sem till. þessi sé ekki borin upp á réttum vettvangi, þá vildi ég þó ekki, fyrir tilmæli fyrra flm., synja þess, að hún yrði rædd hér. Er þó vafasamt, hvort ég treysti mér til að láta umr. ganga úr hófi fram um þessa till., þar sem ég held, að önnur till. komi bráðlega, sem gengur í sömu átt.