20.05.1932
Efri deild: 79. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 858 í B-deild Alþingistíðinda. (419)

5. mál, verðtollur

Jón Þorláksson [óyfirl.]:

Það er rétt að bæta því við nú þegar, að við sjálfstæðismenn höfum sömu afstöðu til 4., 5. og 6. málsins á dagskránni eins og við höfum til þessa frv. Og sömu afstöðu höfum við einnig til fjárlfrv. Við munum ekki sjá okkur fært að greiða því atkv. af því það gerir ráð fyrir þeim tekjustofnum, sem ákveðast af þeim frv., er ég nú hafi nefnt.