29.03.1932
Neðri deild: 37. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1164 í C-deild Alþingistíðinda. (4216)

142. mál, skemmtunarskattur og þjóðleikhús

Flm. (Bergur Jónsson):

Ég hefði mátt sjá vel; ef ég hefði átt að geta séð atburði þá, er gerðust hér á Alþingi 14. apríl síðastl., þar sem ég var þá staddur vestur á Patreksfirði. En eins og ég tók fram, er ég drap á framkomu hv. 3. þm. Reykv. þann dag, þá var það eftir sögn manna, er viðstaddir voru, og voru það miklu skilríkari menn heldur en þessi hv. þm.