31.03.1932
Neðri deild: 39. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1313 í C-deild Alþingistíðinda. (4439)

174. mál, hámark launa

7) SvbH:

Má ég gera grein fyrir mínu atkv.? Forseti: Þetta er nú óþarfa karp orðið um atkvgr., en umr. um málið lokið og sennilega ekki sérstök nauðsyn til grg. fyrir hverju atkv. (SvbH: Það gerði þó hv. þm. V.-Sk. fyrir nokkrum mínútum). Hann gerði það án leyfis forseta. (SvbH: Ber þá að skoða þetta sem bendingu frá hæstv. forseta til mín um að taka orðið án leyfis eins og hv. þm.?). Umr. er lokið um málið.