31.03.1932
Neðri deild: 39. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1315 í C-deild Alþingistíðinda. (4464)

189. mál, einkasala á bifreiðum og mótorvélum

Flm. (Jónas Þorbergsson):

Frv. þessu fylgir allýtarleg grg., sem tekin er eftir hagskýrslum ríkisins. Vegna þess hve mikil vinna hefir verið í það lögð að vanda til undirbúnings þessa máls, sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða um frv. við þessa umr. Það er gert ráð fyrir því, ef frv. verður að lögum, að stofnun þeirri, er það fjallar um, verði sett nánara starfssvið með reglugerð. — Ég vil óska, að frv. verði að lokinni umr. vísað til fjhn.