15.04.1932
Neðri deild: 52. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1318 í C-deild Alþingistíðinda. (4487)

221. mál, útflutningsgjald

Sveinn Ólafsson:

Ég vildi aðeins út af því, sem tekið var fram af hv. flm., geta þess, að hér er um eiginlegt fjárhagsmál en ekki sjávarútvegsmál að ræða. Mér finnst þess vegna, að þetta mál ætti að fara til fjhn., en ekki til sjútvn. Þetta mun og öllum skiljast, að hækkun eða lækkun ríkistekna eru eiginlegustu mál fjhn., og er óþarft um það frekar að ræða.