15.04.1932
Neðri deild: 52. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 922 í B-deild Alþingistíðinda. (469)

7. mál, lax- og silungsveiði

Hannes Jónsson:

Mér finnst einkennilegur leikur leikinn í þessu máli, ef það á að vera næg ástæða til að taka málið af dagskrá, að till. sé svo seint fram komin, að n. hafi ekki getað athugað hana. Má svo lengi halda áfram. Sé ég ekki ástæðu til að draga málið lengur. Ætti það að vera vorkunnarlaust fyrir hv. þdm. að taka afstöðu til þessarar brtt. án þess að málinu sé lengur frestað. Vil ég beina þeirri ósk til hæstv. forseta, að hann haldi áfram umr.