15.04.1932
Neðri deild: 52. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 923 í B-deild Alþingistíðinda. (473)
7. mál, lax- og silungsveiði
Jónas Þorbergsson:
Út af því, sem hæstv. forsrh. sagði, vil ég taka það fram, að það fólst engin hótun um málþóf frá minni hendi í því, sem ég sagði. En þetta mál orkar tvímælis, og hafa í slíkum málum oftast orðið langar umr. hér í hv. d., og minnist ég þess ekki, að hæstv. forseti hafi séð sér fært annað en að slíta fundi, þótt málþófi hafi verið beitt.