20.04.1932
Efri deild: 56. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1044 í B-deild Alþingistíðinda. (609)
13. mál, vegur frá Lækjarbotnum austur í Ölfus
Magnús Torfason:
Ég get sem bezt gert hv. þm. Snæf. það til geðs að draga nokkuð úr því, sem ég sagði um það, að honum væri ekki vel við þennan veg. En ég held fast fram því, að honum er minna um veginn en brýrnar á Nesinu. (HSteins: Hvers vegna?). Blátt áfram af þeirri einföldu ástæðu, að þm. er sjálfum sér næstur, og segi ég það ekki hv. þm. til lasts. En hvað við víkur þessum vegi, þá sé ég ekki annað en að hægt væri að byrja á þeim köflum vegarins, sem nú eru ófærir að vetri til, þó að ekki verði lagt í allan veginn í einu. Annars er það nú svo, að helztu fjármálaspekingar heimsins halda, að með haustinu fari að rakna úr kreppunni. Ég fyrir mitt leyti vona, að svo verði, og þá botnar mótstaða hv. þm. Snæf. í því, að hann lítur svartar á framtíðina en ég.