19.04.1932
Neðri deild: 55. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1064 í B-deild Alþingistíðinda. (659)
9. mál, brúargerðir
Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):
Ég vil benda hv. þm. Dal. á, að brtt. hans á við III kafla 2. gr., en ekki við 1. kafla þeirrar gr. Vænti ég, að hann taki því till. aftur um sinn.
Ég veit vel, að þörfin fyrir brýr utan þjóðvega er víða mikil. En með frv. er stigið stórt spor á móts við héruðin, þar sem ákveðið er að ríkissjóður leggi fram allt að 3/4 hlutum, en héruðin 1/4. Í mínu kjördæmi veit ég, að þetta muni verða mikill léttir, og svo mun víðar verða.
Út af ummælum hv. 2. þm. Rang., að við höfum afgr. málið, er hann var fjarverandi, er það að segja, að það var gert á þeim fundi af því að hæstv. atvmrh. hafði óskað eftir því við form. að málinu væri hraðað. Það er heldur ekki rétt með farið, að hv. þm. hafi ekki vantað nema á þennan eina fund, því að það hefir margoft komið fyrir.
Hv. þm. talaði um, að í frv. væri brú á a, sem ekki væri til, og átti þar vist við prentvillu í frv., Holtsá fyrir Hólsá. En hann má ekki djarft um tala, því að sjálfur ber hann fram brtt. um brú á á, sem ekki er til, Tunguá á Holtamannaafrétti (SvbH: Prentvilla.!). Já, en hitt var líka misritað eða prentvilla.
Hv. þm. segir, að engar brýr séu áætlaðar í sínu kjördæmi eftir frv. (SvbH: það hefi ég aldrei sagt). Jú, en hv. þm. þarf ekki annað en líta á frv. til að sjá þar 5 brýr í Rangárvallasýslu. Þetta fellur því niður af sjálfu sér. Hv. þm. kvaðst helzt leggja til, að III. kaflinn yrði felldur niður. Ég er honum sammála, að ekki saki svo mikið, þótt talsvert af brúm væri fellt úr honum, en öðrum er óhjákvæmilegt að halda, eins og brúm, sem tengja saman landshluta, en sýslurnar geta ekki ráðið við. Svo er um brúna á Jökusá á Fjöllum. Þeirri brú og reyndar fleirum í þeim kafla má alls ekki sleppa.
Það er rétt, að sumstaðar er gert ráð fyrir mörgum brúm á sama vatnsfallið. Við leggjum og til, að ein brú á Hvítá í Árnessýslu verði tekin út, en frv. samþ. með brtt. á þskj. 370.
Ég veit, að litla þýðingu hefir. þótt 30 – 40 brúm yrði hrúgað inn á III kafla 2. gr. frv. í viðbót. Það myndi ekki flýta fyrir framkvæmdum. Hundruð brúa utan þjóðvega verða að bíða, unz fjár hagur ríkissjóðs og héraða leyfir að sinna þeim. En ég tel það þýðingarmesta atriði frv., að tillag ríkissjóðs hefir verið hækkað.