23.04.1932
Neðri deild: 58. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1072 í B-deild Alþingistíðinda. (669)
9. mál, brúargerðir
Jónas Þórbergsson:
Hv. þm. N.-Ísf. virtist vera hneykslaður á því, að ég skyldi einn dm. verða til þess að bera fram brtt. við brúarlagafrv. nú. Hann virðist hafa borið sínar brtt. fram í þeim eina tilgangi að hrella mig, með því að taka þær svona hátíðlega áður. Ég skal taka það fram, að ég hefði áreiðanlega getað tínt á mitt skjal miklu fleiri ár en ég gerði, en ég tók aðeins þær, sem allramest nauðsynin var á. Samgöngur á og umhverfis Hvammsfjörð eru hinar ófullkomnustu bæði á sjó og landi. Væri á því ráðin veruleg bót með vegi milli Vesturlandsvegar og Stykkishólms. En sú vegarbót er ekki hugsanleg án brúa á fyrrnefndar ár.
Þótt ég skilji afstöðu hv. samgmn. og hv. þm. N.- Ísf., hefi ég hugsað mér að taka till. mínar ekki aftur, af því að mér hefir verið uppálagt af mínum kjósendum að fylgja þessu máli eins fast fram og hægt væri.