26.04.1932
Efri deild: 60. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1105 í B-deild Alþingistíðinda. (730)
10. mál, Brunabótafélag Íslands
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Frv. Þetta er nú komið hingað aftur frá Nd., og hefir sú d. ekki breytt frv. um einn staf, að því er snertir sjálft brunabótafélagið, en að vísu aukið inn í síðustu gr. frv. ákvæðum, sem ekki snerti félagið, og má segja, að annað þessara ákvæði a. m. k. sé með öllu óskylt þessu máli. og virðist fremur vera sveitarstjórnarákvæði. Fjhn. er einróma á móti þessum. viðauka við frv., en þar sem þetta hefir ekki áhrif á sjálf lögin, ef frv. verður samþ., og öðlast auk þess ekki gildi fyrr en að tveim árum liðnum frá staðfestingu laganna, sá n. ekki ástæðu til að fara að hrekja málið milli d. af þessum ástæðum. enda nógur tími til stefnu um að lagfæra rétta, áður en ákvæðin koma í gildi. Samkv. hæstv. leggur n. því til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.