14.05.1932
Neðri deild: 75. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1239 í B-deild Alþingistíðinda. (837)

14. mál, útflutningur hrossa

Fors- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Ég vil, vegna fyrirspurnar hv. þm. Borgf., geta þess, að minn skilningur á ákvæðum 1. gr, frv. er sá, að þau séu ekki svo þröng, að þau útiloki það, að flytja megi út smáhópa af tveggja vetra hrossum. Og ég geri ráð fyrir, að ég sem atvmrh. muni túlka þau ákvæði á þann hátt, ef til kemur.