20.02.1932
Efri deild: 6. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1287 í B-deild Alþingistíðinda. (887)
21. mál, geðveikrahæli
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Ég býst við, að hv. þdm. sé kunnugt, að gjaldskrá sú, sem nú er notuð fyrir Gamla-Klepp, er byggð á vafasömum lagarétti. Þegar sá spítali var stofnaður, var gjaldskráin miðuð við þann tíma og var því eðlilega lag. Þegar svo dýrtíð óx á ófriðarárunum, var farið, með vitund þingsins, að hækka daggjöldin þar, þó ekki meira en svo, að menn sættu sig við það, enda mætti hækkunin engri verulegri gagnrýni. Þegar Nýi-Kleppur kom, hefði að vísu verið sanngjarnast að setja hin sömu daggjöld þar og fyrir voru á Gamla Kleppi. En í samræmi við þá tilraun að láta Nýja-Klepp bera sig sem bezt, varð að ákveða daggjöldin hærri þar. Þó hefir verið veitt undanþága frá því, þegar svo hefir staðið á, að fátækt fólk hefir kostað þar vandamenn sína. Hafa þeir þá sloppið með að greiða laga daggjaldið, en hinir efnaðri orðið að borga kr. 3,50 á dag.
Með frv. þessu er því í raun og veru skotið til aðgerða þingsins, hverja reglu það vill um þetta hafa. Hvort það vill t. d. láta þá reglu gilda fyrir Nýja-Klepp, sent gilt hefir á Gamla-Kleppi, eða hvort það vill taka upp einhvern milliveg. Ég legg svo til, að frv. verði, að umr. lokinni, vísað til allshn.