10.05.1932
Sameinað þing: 8. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1322 í B-deild Alþingistíðinda. (970)
22. mál, útvarp og birting veðurfregna
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
mér kemur það á óvart, að hér sé verið að boða fyrst nú aths. frá veðurstofunni við þetta frv. Það er búið að liggja hér fyrir síðan í þingbyrjun, og virðist því svo, sem þær mættu vera fyrr fram komnar. Ég vil minna á það, að því er snertir samninga um undirbúning þessa máls, að þegar ákveðið var í fyrra, að Fiskifél. Íslands hefði þessa starfsemi með höndum til bráðabirgða, þá lá beinast við að snúa sér til þess um undirbúning þessa frv., enda var það gert, og frv. var flutt eins og það kom frá Fiskifélaginu, án þess að það væri borið undir forstjóra veðurstofunnar. — Um það atriði, sem hér liggur fyrir til úrslita, vil ég aðeins lýsa því yfir, að ég fylgi brtt. hv. sjútvn. Ed. um það, að ríkissjóður greiði lítilsháttar styrk til birtingar veðurfregna í nokkrum verstöðvum. Ég sé enga ástæðu til að taka málið af dagskrá, til þess að koma inn í frv. aths. frá veðurstofunni. Ég tel, að hlutaðeigendur, sem hafa framkvæmd þessara laga með höndum, geti komið þeim að á annan hátt.