02.05.1933
Efri deild: 61. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2873 í B-deild Alþingistíðinda. (109)

Afgreiðsla þingmála

Forseti (GÓ):

Hv. 2. landsk. byrjaði eiginlega ræðu sína með því að deila á hv. Nd., en þær aðfinnslur get ég ekki séð, að snerti okkur hér. Það get ég hinsvegar viðurkennt, að nefndarstörf hafa nú í ár verið með lakasta móti hér í d., en mörg eru þau mál, sem liggja fyrir þinginu, þannig vaxin, að ekki er stórskaði, þótt þau leggist fyrir, og ekki held ég, að menn séu bættari, þó að öll yrðu þau að lögum.