10.04.1933
Efri deild: 47. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1063 í B-deild Alþingistíðinda. (1127)
17. mál, varnir gegn útbreiðslu næmra sjúkdóma
Frsm. (Magnús Torfason):
N. hefir athugað þetta frv. og er sammála um að leggja til, að það verði samþ. Þó höfum við nm. borið fram brtt. við frv. Eru það mest orðabreyt., sem miða til þess að færa frv. til betra máls. En þó er 3. brtt., a-liður, dálítið meira en orðabreyting. Upphaf 16. gr. frv. er eins og það er nú nokkuð víðtækt. Þar stendur, að ríkissjóður skuli greiða allan þann kostnað, sem leiðir af þeim ráðstöfunum, sem gerðar verða samkv. lögum þessum. Þetta er of vítt og gæti valdið misskilningi. Vitanlega geta ýmsir menn orðið fyrir miklu tjóni vegna slíkra ráðstafana, t. d. ef setja þyrfti menn í sóttkví, en það er vitanlega ekki tilætlunin, að ríkissjóður beri það. Þess vegna leggur n. til, að upphaf þessarar gr. skuli orða þannig, að allan kostnað við opinberar ráðstafanir samkv. lögum þessum skuli greiða úr ríkissjóði.
Ennfremur skal ég geta þess, að í 16. gr. er vísað til ýmissa fyrri gr. frv., en þær tilvitnanir eru undantekningarlaust skakkar. Stafar það af því, að nýrri gr. hefir verið bætt í frv., og við það raskaðist greinatalan, en ekki gætt þess, að breyta tilvitnunum um leið. Við litum svo á, að þetta stafaði einungis af óaðgæzlu og höfum beðið skrifstofuna að laga þetta, þegar frv. verður prentað upp eftir þessa umr.
Fleira þarf ég ekki að segja um þetta mál að svo stöddu. Það hefir verið gerð grein fyrir því við 1. umr., og n. lítur svo á, að það horfi til nokkurra bóta að ýmsu leyti og sóttvarnarlöggjöfin verði þar með betri en áður, svo sem líklegt er, þar sem 1., sem hér er verið að breyta, eru meira en 25 ára gömul.