19.05.1933
Neðri deild: 78. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1071 í B-deild Alþingistíðinda. (1153)

14. mál, veiting ríkisborgararéttar

1153Jóhann Jósefsson:

Vegna þess að ég veit, að stjórnarráðið er að láta undirbúa umsókn til allshn. um ríkisborgararétt manns, sem lengi hefir verið í Vestmannaeyjum og hefir sótt um ríkisborgararétt, en ekki á formlegu blaði, vildi ég spyrja hv. frsm. n., hvort hann gæti ekki fallizt á, að málið yrði tekið út af dagskrá að þessu sinni, svo tækifæri gefist til að koma með brtt. um þessa umsókn.