22.05.1933
Neðri deild: 80. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1071 í B-deild Alþingistíðinda. (1156)

14. mál, veiting ríkisborgararéttar

Frsm. meiri hl. (Bergur Jónsson):

Ég vil fara fram á það við hæstv. forseta, að þetta mál verði tekið út af dagskrá nú. Það er enn um 2 menn að ræða, sem sækja um ríkisborgararétt, en eru ekki búnir að afhenda skjöl fyrir umsóknum sínum til allshn. Verður það gert á morgun, og tekur n. þau þá til athugunar.