02.05.1933
Neðri deild: 63. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 2878 í B-deild Alþingistíðinda. (123)
Afgreiðsla þingmála
Héðinn Valdimarsson:
Við Alþfl.menn höfum flutt 24 frv. á þessu þingi. Af þeim eru 2 orðin að l., 2 hafa verið felld, en hin liggja flestöll hjá n. í meiri eða minni óreiðu. Vil ég nú skora á hæstv. forseta, að hann skrifi n. og áminni þær um að skila málunum frá sér sem allra fyrst, svo að þau geti fengið afgreiðslu þingsins á einn eða annan hátt. Þingið hefir nú senn staðið í 3 mánuði, og virðist þó harla lítið eftir það liggja, enn sem komið er a. m. k. Kreppumálin eru skammt á veg komin. Till. okkar Alþfl.manna í þeim munu ekki hafa fundið náð fyrir augum stj., enda virðist sem svo mikið eigi ekki við þær að hafa að athuga þær, en þær till., sem stj. enn hefir borið fram í þessum málum, taka aðeins til bændanna. Verkamönnunum hefir stj. alveg gleymt. Stjskr.-málið er og enn óafgr., og hefir form. stjskrn. ekki einu sinni haft svo mikið við að kalla n. saman til fundar. Vil ég því skora á hæstv. forseta, að hann gefi form. stjskrn. áminningu, svo hann kalli n. þó a. m. k. saman til fundar, en ekki sé haldið áfram leikaraskapnum í þessu máli, eins og raunar öðrum málum á þessu þingi.