31.05.1933
Neðri deild: 88. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1255 í B-deild Alþingistíðinda. (1303)

66. mál, lögreglumenn

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Ég verð að segja, að mér finnst þessi till. heldur óþörf, því að ég geri ekki ráð fyrir, að neinum manni verði þröngvað til að taka þátt í þessu starfi. Ég skoða þessa till. borna fram til þess að koma fram með einhverjar brtt., en ekki af því, að hv. flm. haldi, að hér verði brúkuð einhver nauðung. Ég sé því ekki ástæðu til þess að samþykkja þessa breytingartillögu, og lýsi því yfir fyrir mitt leyti, að ég mun ekki neyða neinn til að taka þátt í þessu starfi.